top of page

Leiðsagnarnám í Hlíðaskóla
Áður en upptalning gagna fer fram er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að stærsta og helsta verkfæri leiðsagnarnáms er námsmenning:
Helstu markmiðin í þróun námsmenningarinnar:
-
Kennarar greini jafnt og þétt tengslin milli vinnu sinnar og framfara nemenda
-
Sérhver nemandi upplifi að gerðar séu ríkar væntingar til hans
-
Nemendur hafi trú á eigin getu og á getu félaga sinna
-
Nemendur búi yfir námsvitund
-
Kennarinn hafi áunnið sér traust nemenda
-
Nemendur ræði stöðu sína án ótta við mistök
-
Nemendur búi yfir innri áhugahvöt og vaxandi hugarfari
-
Nemendur sýni þrautseigju í náminu
-
Samskipti einkennist af lýðræðislegum gildum
-
Nemendur hafi val og taki þátt í að skipuleggja námið
-
Nemendum sé gert kleift að taka aukna ábyrgð á námi sínu
Nafnaspýtur
Notaðar til að gæta þess að allir nemendur taki jafnan þátt. Þegar spurninga er spurt dregur kennari nafn sem svarar spurningunni

Tússtöflur
Eru einnig ætlaðar til að tryggja þátttöku allra nemenda. Spurninga er spurt, nemendur skrifa svör á töfluna og sýna svo töflurnar öll í einu. Mikið notað með námsfélögum og í samræðutímum.

bottom of page